






Í dag spilaði ÍA í Pepsi Max-deild karla
þegar liðið fékk ÍBV
í heimsókn.
Um mikinn baráttuleik var að ræða þar sem Skagamenn börðust um hvern bolta og voru mjög skipulagðir í sínum leik. Bæði lið fengu sín marktækifæri í leiknum en Skagamenn voru heilt yfir sterkari aðilinn og unnu að lokum verðskuldaðan 2-1 sigur. Mörk ÍA gerðu Einar Logi Einarsson
eftir sendingu frá Viktori Jónssyni
og Tryggvi Hrafn Haraldsson
úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Gonzalo Zamorano
.
Eftir frekar dapurt gengi í síðustu leikjum komu þrjú dýrmæt stig í dag og er ekki úr vegi að hrósa strákunum
og þjálfurum
liðsins
fyrir vel skipulagðan leik. Einnig er full ástæða til að þakka þeim fjölmörgu áhorfendum sem mættu til að styðja strákana í þessum leik.
Næsti leikur ÍA er gegn KR
sem fer fram sunnudaginn 1. september nk.
Hér að neðan má sjá Gonzalo Zamorano
, sem var valinn maður leiksins, og Magnús Guðmundsson
, formann KFÍA.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is