Efnilegustu leikmenn yngri flokka ÍA

Á lokahófi yngri flokka ár hvert eru veittir Donna- og Stínubikar til efnilegustu leikmenn yngri flokka ÍA. Donna- og Stínubikararnir eru sérstök heiðursverðlaun sem eru veitt leikmönnum sem uppfylla ekki bara knattspyrnuhæfileika heldur ennig að viðkomandi sé góð fyrirmynd, sýni metnað, góða ástundun og góða framkomu innan vallar sem utan.


Donnabikarinn er afhentur efnilegasta leikmanni yngri flokka karla og var fyrst afhentur árið 1983. Donna bikarinn er gefinn af fjölskyldu Donna, sem hét fullu nafni Halldór Sigurbjörnsson, en hann var burðarás í fyrsta Gullaldarliði Skagamanna. Hann lék 110 leiki fyrir Skagamenn og 8 leiki fyrir Íslands hönd.


Stínubikarinn er afhentur efnilegasta leikmanni yngri flokka kvenna og var fyrst afhentur árið 2015. Stínubikarinn er nefndur í höfuðið á Kristínu Aðalsteinsdóttur, Stínu, sem er fyrsta landsliðskona ÍA. Kristín var burðarás í liði ÍA í kringum 1980 og lék sinn fyrsta landsleik 1981. Stínubikarinn var fyrst afhentur árið 2015 og  á að vera hvatning til ungra stelpna að stefna hátt.Gefandi bikarsins var fyrirtækið Þorgeir og Ellert hf.




Nadía Steinunn Elíasdóttir og Styrmir Gíslason

Hér má sjá vinningshafa Donna- og Stínubikarsins frá upphafi

Donnabikar

2026 Styrmir Gíslason

2025 Viktor Gaciaski

2024 Gabríel Snær Gunnarsson

2023 Arnór Valur Ágústsson

2022 Tómas Týr Tómasson

2021 Haukur Andri Haraldsson

2020 Ólafur Haukur Arilíusarson

2019 Ingi Þór Sigurðsson

2018 Oliver Stefánsson

2017 Ísak Bergmann Jóhannesson

2016

2015


Stínubikar

2026 Nadía Steinunn Elíasdóttir

2025 Helena Ósk Einarsdóttir Somlata

2024 Sunna Rún Sigurðardóttir

2023 Hugrún Stefnisdóttir

2022 Salka Hrafns Elvarsdóttir

2021 Elvira Agla Gunnarsdóttir

2020 Dagbjört Líf Guðmundsdóttir

2019 Lilja Björg Ólafsdóttir

2018 Anna Þóra Hannesdóttir

2017 Sigrún Eva Sigurðardóttir

2016

2015