Sterkir Skagamenn

Sterkir Skagamenn

Sterkir Skagamenn er skemmtilegur félagsskapur sem hefur það að meginmarkmiði að vera kröftugur fjárhagslegur og félagslegur stuðningsaðili og bakhjarl KFÍA. 


Árgjald félagsins er kr. 110.000,- , eða 9.500 kr. á mánuði, sem að öllu leyti er ráðstafað til stjórnar KFÍA. 


Innifalið í árgjaldinu er miði á alla leiki meistaraflokks karla og kvenna, þar sem hver félagsmaður getur boðið með sér einum gesti. Þá mun félagsskapurinn standa fyrir móttökum fyrir leiki á Íslandsmóti og fleiri viðburðum sem ræðst af vilja félagsmanna.



Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í félagsskapnum er bent á að senda tölvupóst á sterkirskagamenn@kfia.is, senda skilaboð á Facebook síðu félagsins, smella á hlekkina hér að neðan.
Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning félagsins, og senda staðfestingu í tölvupósti.

Kennitala:500487-1279
Reikningur:552-26-6075
Netfang: eyjolfur@ia.is

Hér að neðan má sjá stjórnarmenn Sterkra Skagamanna

Dýrfinna Torfadóttir


Haraldur Ingólfsson

Jón Gunnlaugsson


Magnús D Brandsson

Örn Gunnarsson


Share by: