Gildi Knattspyrnufélags ÍA

Metnaður

sem er sigurvilji, vilji til þess að bæta sig stöðugt, jafnt innan vallar sem utan, skara framúr. 

Vinnusemi

því árangur næst aldrei nema með þrotlausri vinnu og lærdómsfýsn. 

Þrautseigja

sá eiginleiki að gefast aldrei upp þótt á móti blási. 

Virðing

til hvers annars, utan sem innan vallar, gagnvart þjálfara, meðspilurum og andstæðingum

Agi

til að fylgja ákvörðunum þjálfara og dómara, sjálfsagi á æfingum og í leik.