Skagamótin
Ár hvert stendur ÍA fyrir knattspyrnumótum hér á Akranesi.
Aðstaðan hér á Akranesi er til fyrirmyndar, stutt í alla þjónustu og vegalendir fyrir keppendur stuttar. Skagasamfélagið hjálpast að að gera upplifun hvers og eins eins góða og hægt er. Þetta eru mótin okkar sem við höldum hér á Akranesi
Norðurálsmótið er stórt yngri flokka mót fyrir stúlkur og drengi í 8 og 7 flokk. Mótið er haldið 3 helgina í júní ár hvert.
Kapp mótið eru stutt dagsmót fyrir yngri flokka í 7 og 6 flokk sem haldið er yfir vetrartímann.
Gatorade mótið er fyrir iðkendur í fjórða flokki. Mótið er haldið fyrstu helgina eftir Verslunarmannahelgina











