Foreldraráð

Þjálfarar hafa frumkvæði að stofnun flokksráða í hverjum flokki yngri flokka félagsins á hverju hausti. Flokksráð skal skipað a.m.k. þremur foreldrum eða forráðamönnum í hverjum flokki, frá yngra og eldra ári. Flokksráð starfa sjálfstætt en heyra undir Barna- og unglingaráð (BUR). Flokksráð er tengiliðir við BUR og starfar í samvinnu við iðkendur, foreldra, þjálfara og yfirþjálfara.

Stefna KFÍA er að það sé til staðar flokksráð í öllum yngri flokkum félagsins.

Undirbúning móta

Flokksráð sinnir mikilvægum verkefnum við undirbúning mótahalds. Foreldrar/forráðamenn skulu að öllu jöfnu kosta ferðir og uppihald á mót. Foreldrar/forráðamenn greiða 2.500kr per barn per skemmtimót (helgarmót) fyrir þjálfarakostnað. KFÍA greiðir fyrir þjálfara á mót á vegum KSÍ.




Skipulag ferðalaga

Vera í góðu samstarfi við þjálfara viðkomandi flokks vegna leikja, undirbúnings leikja og keppnisferða. Reynt verði að koma því við að ferðast á einkabílum á mótin sé þess kostur, að öðrum kosti panta rútu í samstarfi við þjálfara/skrifstofu. Kostnaður innheimtur í Sportabler.


Fjáraflanir

 Flokksráð skulu halda utan um fjáraflanir flokka og vera tengiliðir við skrifstofu KFÍA. Bankareikningar skulu vera á kennitölu knattspyrnudeildar með samþykki stjórnar og koma fram í bókhaldi hennar. Einn fulltrúi úr hverju flokksráði ber ábyrgð á bankareikningi hvers flokks. Óheimilt er að skuldsetja hópa vegna ferðalaga erlendis eða innanlands nema með samþykki stjórnar. Upplýsa skrifstofu KFÍA um hvaða fjáröflun er farið í.


Flokksráð skal upplýsa aðra foreldra/forráðamenn um þær fjáraflanir og starfsemi sem í gangi er hverju sinni, hægt að nota Sportabler eða stofna flokkssíðu á samfélagsmiðlum eftir því hvað hentar.


Jákvæðar fyrirmyndir

Skipuleggja atburði utan hefðbundinna æfinga og félagsstarf sem stuðlar að uppbyggingu hópsins í samráði við foreldra



Eitt af hlutverkum flokksráðs er að koma á framfæri við skrifstofu KFÍA, fréttum, upplýsingum og myndum af starfi/mótum viðkomandi flokka.


Verkefni foreldrafulltrúa á sumarmótum yngri flokka


Setur upp vaktaskjal í samráði við þjálfara flokks, þar sem mótsdögum er skipt á milli foreldra, gott að setja upp í Google sheet skjal og senda skjal á foreldra/forráðamenn til að skrá sig á vaktir.


Skipuleggur nestismál fyrir liðin, bakstur eða kaupa nesti fyrir dagana, hægt að reyna að fá styrki frá matvörubúðum á Akranesi, t.d. að fá gefna ávexti eða drykki.


Hvetur foreldra og forráðamenn barnanna til að mæta og hvetja og vera til staðar fyrir börnin


Hvetur foreldra/forráðamenn til að vera merkt ÍA, vera gul og glöð og hvetja liðin.


Hvetur foreldra/forráðamenn og liðin til að horfa saman á önnur ÍA lið á móti og hvetja ÍA