Tryggingamál iðkenda

Tryggingamál iðkenda ÍA

Iðkendur Knattspyrnufélagsins ÍA eru ekki tryggðir á vegum félagsins þó að þeir æfi og keppi á vegum þess. Iðkendur félagsins geta þó átt rétt til bóta hjá Sjúkratryggingum Íslands verði þeir fyrir meiðslum.

Hægt er að afla sér frekari gagna á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands undir Íþróttaslys. Forráðamenn eða iðkendur bera sjálfir ábyrgð á því að afla sér tilskilinna gagna. Hægt er að fá aðstoð á skrifstofu Knattspyrnufélagsins ÍA við útfyllingu og frágang skjala.


Iðkendur sem orðnir eru 16 ára

Sjúkratryggingar Íslands slysatryggja íþróttafólk sem orðið er 16 ára. Tryggingin nær til þeirra er taka þátt í íþróttaiðkun og slasast við keppni, sýningar og æfingar.

Viðkomandi þarf að æfa reglubundið hjá íþróttafélagi sem er hluti af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.


Leikmenn sem eru samningsbundnir meistaraflokki

Samningsbundir leikmenn hjá ÍA fá sjúkrakostnað sinn greiddann og annast öll samskipti við Sjúkratryggingar Íslands.


Eftirfandi fæst endurgreitt að hluta hjá Sjúkratryggingum gegn framvísun frumrits reiknings:

Læknisviðtöl, myndatökur, segulómun og aðgerðir.


Sækja þarf um innan 12 mánaða eftir að slysið á sér stað. Það þarf að fylla út umsókn varðandi hvert slys. Eyðublaðið er m.a. að finna á heimasíðu Sjúkratrygginga, https://www.sjukra.is/ undir liðnum Íþróttaslys.

Ef lækniskostnaður (læknisviðtöl, myndatökur, ómun, aðgerðir) er kominn yfir viðmið Sjúkratrygginga Íslands á sama almanaksári þá stofnast inneign hjá Sjúkratryggingum Íslands vegna hluta kostnaðar yfir viðmiðunarmörkum. Í þeim tilfellum þá þarf að fylgja málinu afrit af greiðsluyfirliti frá Sjúkratrygginum Íslands þar sem fram kemur upphæð inneignar/endurgreiðslu Sjúkratrygginga.


Hvað fæst EKKI endurgreitt hjá Sjúkratryggingum Íslands

kostnaður vegna sjúkrabíls eða flugfargjalda í tengslum við læknisþjónustu, lyfjakostnaður, stoðtæki og tannslys


Frekari upplýsingar á vef Sjúkratrygginga Íslands:

Í 10.–13. gr. laga nr. 45/2015 eru tilgreindir þeir þættir tjóns sem greiddir eru af slysatryggingum almannatrygginga. Sjá hér: https://www.althingi.is/lagas/153c/2015045.html

Jafnframt vísast um þetta til reglugerðar nr. 245/2002 sem er aðgengileg hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/245-2002


Hvernig þarf að bera sig að

Fylla út eyðublaðið og fá kvittun og stimpil hjá Skrifstofu ÍA (innan 12mán.).


Senda eyðublaðið og öll nauðsynleg fylgigögn til Skrifstofu ÍA (ath. þessi gögn þurfa að vera frumrit).

ÍA greiðir þann hluta sjúkrakostnaðar sem Sjúkratryggingar greiðir ekki, þó þannig að ÍA greiðir ekki fyrir, stoðtæki eða tannslys.

ATH ofangreindar reglur gilda einungis um samningsbundna leikmenn meistaraflokka ÍA. 


ÍA tekur ekki þátt í sjúkrakostnaði annarra iðkenda.


Einnig bæta Sjúkratryggingar Íslands tjón vegna tannlækninga (skv. gjaldskrá) ef ekki er réttur til endurgreiðslu annars staðar.

Það er mikilvægt að benda á það að samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða fyrir í starfinu.

Share by: