






Hörður Ingi Gunnarsson
og Stefán Teitur Þórðarson
hafa báðir skrifað undir nýja samninga við KFÍA til þriggja ára
. Þeir hafa verið lykilleikmenn í byrjunarliði ÍA í Pepsi Max deild karla í sumar.
Hörður Ingi Gunnarsson
er fæddur árið 1998 og hefur spilað 32 deildar- og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim eitt mark. Hann á að baki fjölda unglingalandsliðsleikja með U17, U19 og U21 árs landsliðum Íslands.
Stefán Teitur Þórðarson
er fæddur árið 1998 og hefur spilað 57 deildar- og bikarleiki með ÍA og skorað í þeim 14 mörk. Hann á að baki landsleiki með U21 árs landsliði Íslands.
Sigurður Þór Sigursteinsson
, framkvæmdastjóri KFÍA, lýsti yfir mikilli ánægju með að búið væri að semja við þessa leikmenn félagsins.„Hörður og Stefán hafa staðið sig gríðarlega vel í sumar þrátt fyrir ungan aldur. Það er líka mikilvægt að búið sé að ganga frá langtímasamningi við þá báða. Það sýnir fram á stefnu félagsins að ganga frá samningamálum við lykilleikmenn sem fyrst.”
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is