






Magnús Guðmundsson , formaður KFÍA, Heimir Fannar Gunnlaugsson , varaformaður KFÍA og Sigurður Þór Sigursteinsson , framkvæmdastjóri KFÍA, eru þessa daga í heimsókn hjá Norrköping í Svíþjóð til að kynna sér aðstæður hjá félaginu.
Félögin gerðu með sér samstarfssamning í fyrra og fulltrúar frá báðum félögum hafa farið í heimsóknir og kynnt sér aðstæður hjá hvoru félagi. Nú var komið að fulltrúum KFÍA og hafa þeir verið að skoða hvernig Norrköping vinnur að markaðsmálum, þróunarverkefnum og að móta áætlanir til framtíðar.
Svíarnir eru mjög áhugasamir um samstarfið við KFÍA og hrífast þeir af því
módeli sem við höfum mótað hér á Skaganum síðustu ár. Sérstaklega eru þeir
hrifnir af afreksstarfi og hæfileikamótun félagsins og hvernig ungir leikmenn
eru þjálfaðir í að verða betri leikmenn. Fram kemur á heimasíðu Norrköping að
uppbyggingarstarf KFÍA sé til mikillar fyrirmyndar og hefur meiri gæðastimpill
en hjá félögum víða í Svíþjóð.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is