






Í kvöld spilaði ÍA í Inkasso-deild kvenna
þegar liðið heimsótti Aftureldingu
á gervigrasvöllinn að Varmá. Bæði lið voru að berjast við að halda sér í efri hluta deildarinnar og því var búist við hörkuleik.
Bæði lið mættu mjög ákveðin til leiks og mikil barátta var í leiknum. Marktækifæri voru á báða bóga en Afturelding fékk betri færi og náði að ógna marki ÍA meira. Afturelding var sterkari aðilinn í leiknum og náði að vinna 1-0 sigur.
Skagastelpur gerðu þó í tvígang tilkall til þess að fá vítaspyrnu í leiknum og virtust þær hafa nokkuð til síns máls. Dómari leiksins var þó ekki á sama máli en slíkar ákvarðanir hefðu haft mikið að segja um úrslit leiksins.
Næsti leikur ÍA er við Augnablik
í deildinni en leikurinn fer fram á mánudaginn.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is