






Í kvöld spilaði ÍA í Pepsi Max deild karla
þegar liðið heimsótti Víking R
á Víkingsvöllinn.
Bæði lið fengu sín marktækifæri og mikil barátta var í leiknum. Víkingur fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Árni Snær Ólafsson
gerði vel í marki ÍA og varði skotið. Víkingar voru mun meira með boltann án þess að skapa sér hættuleg færi gegn geysisterkri vörn ÍA.
Skagamenn áttu svo ágætar skyndisóknir í leiknum en náðu ekki að nýta þær þegar á reyndi. Leikurinn endaði þannig með markalausu jafntefli. Strákarnir náðu dýrmætu stigi eftir þrjá tapleiki í deildinni í röð og eru í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig.
Næsti leikur ÍA er við Fylki
sem fram fer á Norðurálsvellinum laugardaginn 6. júlí nk.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is