






Nýr og glæsilegur upplýsingaskjár verður vígður í dag á Norðurálsvelli. Um er að ræða 144,5 tommu LED skjá frá fyrirtækinu Exton.
Um er að ræða gjörbyltingu frá gömlu skortöflunni og tímaklukkunni sem var á sama stað við knattspyrnuvöllinn á Akranesi.
Nýi upplýsingaskjárinn er með unilumin 6,67 mm pixel skjá. Stýrikerfið er frá Scoreboard System.
Notkunarmöguleikarnir eru fjölmargir, nýta má skjáinn til að birta myndir af leikmönnum, sýna hver skoraði og innáskiptingar, spila auglýsingar og minna á næsta leik eða æfingar.
„Risa LED skjár með hárri upplausn eykur VÁ-áhrifin og gerir upplifun áhorfenda af leiknum enn skemmtilegri,“ segir í tilkynningu frá Exton.
LED skjárinn verður vígður á leik ÍA og Aftureldingar í Inkasso-deild kvenna í dag eins og áður segir. Leikurinn hefst kl. 17:15.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is