






Í sumar verður starfræktur Knattspyrnuskóli ÍA fyrir börn fædd 2011 - 2016. Skólastjóri verður Aron Ýmir Pétursson og honum innan handar verða þjálfarar félagsins. Leikmenn MFL.KK/KVK munu koma og miðla reynslu sinni á faglegan og skemmtilegan hátt.
Meginmarkmiðið er að börn læri undirstöðuatriði í fótbolta á leikrænan og skemmtilegan hátt. Lögð er áhersla á grunntækni í knattspyrnu og að allir fá verkefni við sitt hæfi. Skipt verður í hópa eftir aldri og unnið í litlum hópum til að hámarka fjölda snertinga við boltann hjá hverjum iðkanda. Unnið verður eftir því að æfingar barna á þessum aldri séu fjölbreyttar og stuðli að bættum skyn- og hreyfiþroska. Knattspyrnuskólinn er kjörinn vettvangur fyrir nýja iðkendur til að kynnast grunnatriðum íþróttarinnar en er jafnframt ætlaður börnum sem æfa fótbolta og vilja skemmtilega viðbót við hefðbundnar æfingar.
Iðkendur geta mætt kl.09:00 í Akraneshöll þar sem þjálfari tekur á móti börnunum og verður frjáls tími í höllinni þar til knattspyrnuskólinn hefst kl.10:00.
Knattspyrnuskólinn hefst kl.10:00 á æfingasvæði ÍA. Kennt er alla virka daga frá kl.10:00 – 12:00.
Hverju námskeiði lýkur með grillveislu.
Börnin þurfa að taka með sér nesti og vatn í brúsa .
Alls verða sjö vikur í boði í sumar og eru það eftirfarandi vikur:
Verðskrá
Þátttökugjald á námskeiðunum eru sem hér segir:
Skráning og greiðslufyrirkomulag
Skráning fer fram í gegnum Sportabler appið eða https://www.sportabler.com/shop/kfia
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is