






Í kvöld fór fram sjötti leikur ÍA í Pepsi Max-deild karla
þegar liðið fékk Stjörnuna
í heimsókn. Um mikinn baráttuleik var að ræða þar sem Skagamenn börðust um hvern bolta og voru mjög skipulagðir í sínum leik.
Bæði lið fengu sín marktækifæri í leiknum en Skagamenn voru heilt yfir sterkari aðilinn og unnu að lokum verðskuldaðan 2-0 sigur. Mörk ÍA gerðu Einar Logi Einarsson
eftir sendingu frá Steinari Þorsteinssyni
og Steinar Þorsteinsson
eftir sendingu frá Viktori Jónssyni
. Er nú útlit fyrir mikla baráttu milli miðvarðanna Einars Loga
og Óttars Bjarna
um markakóngstitilinn en harðari barátta hefur ekki sést árum saman.
Tímabilið byrjar þannig frábærlega og er ekki úr vegi að hrósa strákunum
og þjálfurum
liðsins
fyrir frábæran og vel skipulagðan leik. Einnig er full ástæða til að þakka þeim fjölmörgu áhorfendum sem mættu til að styðja strákana í þessum leik en 1726 áhorfendur mættu á völlinn sem er frábær mæting.
Hér að neðan má sjá Stefán
Teit Þórðarson
, sem valinn var maður leiksins, og Magnús Guðmundsson
formann KFÍA.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is