






Í kvöld fór fram þriðji leikur ÍA í Pepsi Max-deild karla þegar liðið fór og heimsótti Val
að Hlíðarenda. Um mikinn baráttuleik var að ræða þar sem Skagamenn börðust um hvern bolta og voru skipulagðir í sínum leik.
Bæði lið fengu góð marktækifæri í leiknum en Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Íslandsmeistara Vals á útivelli, sem var í fyrsta sinn í þrjú ár sem Valur tapar á heimavelli sínum. Leikurinn endaði 1-2 og mörk ÍA gerðu Óttar Bjarni Guðmundsson
, markamaskína úr Breiðholtinu og Arnar Már Guðjónsson
. Bæði mörkin voru lögð upp af Tryggva Hrafni Haraldssyni
með góðum hornspyrnum.
Tímabilið byrjar þannig frábærlega og er ekki úr vegi að hrósa strákunum
og Jóa Kalla
fyrir frábæran og vel skipulagðan leik. Einnig er full ástæða til að þakka þeim fjölmörgu áhorfendum sem mættu til að styðja strákana í þessum leik.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is