Knattspyrnufélag ÍA og Norðanfiskur ehf. gerðu samning í lok síðasta árs til þriggja ára. Meginþáttur samningsins er stuðningur Norðanfisks við grasrótarstarf félagsins. Í sumar tók til starfa á vegum ÍA Fótboltaskóli Norðanfisks fyrir börn 6 - 12 ára. Einar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Norðanfisks, kom í heimsókn í skólann færandi hendi, en allir þátttakendur fá hárband í gjöf frá fyrirtækinu. Það var Bryndís Rún Þórólfsdóttir, skólastjóri og fyrirliði meistarflokks kvenna, sem tók á móti Einari við þetta tækifæri. Í skólanum læra börn undirstöðuatriði í fótbolta á leikrænan og skemmtilegan hátt. Í sumar verða 7 vikunámskeið, næsta byrjar 27. júní. Skráning í Sportabler eða https://www.sportabler.com/shop/kfia.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is