






Fyrr í dag
var Knattspyrnufélag ÍA að ganga frá samningi við varnarmanninn Aron
Kristófer Lárusson
. Hann gengur til liðs við ÍA frá Þór á Akureyri en
hann er fæddur árið 1998. Aron hefur leikið 71 leik á sínum ferli með Þór
og Völsungi
og skorað í þeim átta mörk.
Aron fetar
í fótspor afa síns, Sigurðar Lárussonar
, sem var mjög öflugur leikmaður ÍA á sínum
tíma. Sigurður var fyrirliði sigursæls liðs ÍA á níunda áratugnum þegar liðið
varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Sonur hans og faðir Arons er svo Lárus
Orri Sigurðsson
, sem spilaði með Þór til fjölda ára og var atvinnumaður á sínum
tíma áður en hann lauk ferli sínum formlega með ÍA árið 2010. Svo skemmtilega
vill til að Aron skrifar undir samninginn á afmælisdegi afa síns, Sigurðar
heitins.
Jóhannes
Karl Guðjónsson
þjálfari meistaraflokks karla lýsti yfir ánægju með að Aron hafi
gengið til liðs við ÍA. Þrátt fyrir ungan aldur hafi hann spilað marga leiki
með meistaraflokki og sé hugsaður sem framtíðarleikmaður hjá félaginu.
Við bjóðum Aron velkominn til ÍA og hlökkum til að
sjá hann á vellinum á komandi misserum.
Ingimar Elí Hlynsson
Framkvæmdastjóri
Sími: 620 2870
ingimarh@ia.is
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Skrifstofu-og verkefnastjóri KFÍA
Sími: 858 7361
palli@ia.is
Sverrir Mar Smárason
Sölu- og markaðsstjóri KFÍA
Sími: 897 6153
sverrir@ia.is