Æfingagjöld

Skrá iðkanda

Æfingagjöld 2024 - skráning hefst 1.janúar í Sportabler - Lokadagur 1.febrúar  til að ganga frá greiðslum á fyrri hluta æfingagjalda.

Árgangur Flokkar Æfingagjöld Afsláttur v/vinnu á Norðurálsmótinu Tómstundarframlag Upphæð
2005 2.flokkur 169.000 25.000 144.000
2006-2007 2.flokkur 169.000 25.000 35.000 (miðað við 1 barn) 109.000
2008-2011 3.-4. flokkur 169.000 25.000 35.000 (miðað við 1 barn) 109.000
2012-2013 5. flokkur 157.000 25.000 35.000 (miðað við 1 barn) 97.000
2014-2015 6.flokkur 142.000 25.000 35.000 (miðað við 1 barn) 82.000
2016-2017 7.flokkur 128.000 25.000 35.000 (miðað við 1 barn) 68.000
2018 8.flokkur eldri 67.000 25.000 42.000
2019 8.flokkur yngri 54.000 25.000 29.000

SKILMÁLAR OG UPPLÝSINGAR UM ÆFINGAGJÖLD KFÍA 


 

  • Innheimta á árgjaldi verður í tveimur greiðslum. 
  • Önnur greiðslan er frá janúar til loka ágúst   (átta mánuðir) og hin frá   september til desember (fjórir mánuðir). 

 

  • Skráning ið kenda, greiðsla æfingagjalda og öll upplýsingamiðlun fer nú fram í gegnum Sportabler. 
  • Kerfið er afar einfalt í notkun og ef einhver lendir í vandræðum með kerfið bendum við á þjónustuver hjá Sportabler.
  • Með því að færa æfingagjöldin yfir einföldum við starfið með því að hafa allt á sama stað, gjöld, skráningar og upplýsingamiðlun.
  • Aðstandendur hafa góða yfirsýn yfir stöðu skráninga í Sportabler appinu.
  • Systkinaafsláttur er 12% og kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á.
  •  ATH þegar fleiri en eitt barn er skráð í Sportabler þá er best að byrja á því yngsta barninu sem er með lægsta æfingagjaldið þannig að systkinaafslátturinn nýtist sem best. 
  • Miðað er við að æfingagjöld séu greidd í upphafi tímabils og eigi síðar en tveimur vikum eftir að iðkandi hefur æfingar og greiða skal fyrir iðkanda í réttan flokk eftir flokkaskipti

 


Smellið á https://www.sportabler.com/shop/kfia til að fara á skráningarsíðu KFÍA


Ef þið lendið í vandræðum , eða hafið einhverjar fyrirspurnir um skráningu hafið þá samband við Páll Guðmundur Ásgeirsson,

palli@ia.is  eða í síma 858 7361



Ef unnið er á Norðurálsmóti dregst sú vinna frá seinni greiðslunni sem innheimt er í september. 

Hægt er að skrá inn nýja iðkendur á sumrin og innheimtist þá fjögurra mánaða sumargjald fyrir tímabilið maí – ágúst. 

 

Forráðamaður ber ábyrgð á skráningu iðkanda og greiðslu í gegnum skráningarkerfið Sportabler og að allar upplýsingar séu rétt skráðar, þ.m.t. netföng, símanúmer og heimilisföng. 

 

Sé það ekki gert er KFÍA heimilt að skrá iðkanda og gefa út greiðsluseðill fyrir æfingagjöldum samkvæmt verðskrá án afslátta og tómstundaframlags. 

 

Lokadagur skráningar hjá KFÍA er 1.febrúar  

 

Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd KFÍA og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun þá má búast við því að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum.


Kjósi iðkandi að hætta æfingum innan tímabils eru æfingagjöld ekki endurgreidd nema ef um alvarleg veikindi/meiðsl eða búferlaflutninga er að ræða. 


Í slíkum tilfellum skal sækja um endurgreiðslu til skrifstofu félagsins á netfangið kfia@ia.is. 

Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna þegar iðkandi hættir hjá félaginu. Tilkynning til þjálfara iðkandans er ekki tekin gild. 

Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með tómstundaframlagi Akraneskaupstaðar. 

 

Mikilvægt er að hafa samband við skrifstofu ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkanda. 


Séu eldri æfingagjöld ógreidd er óheimilt að skrá iðkanda á nýtt tímabil nema vanskil séu gerð upp. Heimilt er útiloka iðkanda frá æfingum og keppni séu eldri æfingagjöld í vanskilum. 


Greiðsla æfingagjalda er forsenda fyrir þátttöku á æfingu og mótum sem KFÍA fer á. 


Systkinaafsláttur 

Systkinaafsláttur er 12% og kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á

*ATH þegar fleiri en eitt barn er skráð í Sportabler þá er best að byrja á því yngsta barninu sem er með lægsta æfingagjaldið þannig að systkinaafslátturinn nýtist sem best. 


Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar 


Ef forráðamáður vill nýta tómstundaframlag Akraneskaupstaðar er það gert samhliða skráningu í Sportabler áður en gengið er frá greiðslu. 


Frekari upplýsingar um tómstundaframlagið er að finna á vef Akraneskaupstaðar


Vinna á Norðurálsmóti 

 

Norðurálsmótið sem KFÍA heldur ár hvert í júní, er aðal fjáröflun barna- og unglingastarfs KFÍA. Forráðamenn hafa kost á því að lækka æfingagjöld með því að vinna á Norðurálsmótinu. 

Miðað er við að vinna á mótinu sé 10 klst pr barn og þá lækkar árgjald sem nemur 25.000kr. 


Ef fólk hefur áhuga á meiri vinnu á Norðurálsmótinu er hægt að hafa samband við skrifstofu KFÍA



Ferðir og mót 


Þátttökugjöld, kostnaður þjálfara við skemmtimót (ekki Íslandsmót eða faxaflóamót) sem og ferðakostnaður vegna leikja er ekki innifalin í æfingagjöldum. 


Foreldraráð hvers flokks fyrir sig ákveða hvort leigja eigi rútu eða ferðast á einkabílum. 

Ef valið er að ferðast með rútu þá bætist við rútugjald sem er innheimt í gegnum Sportabler. Þjálfari eða foreldrafulltrúi hefur samband við skrifstofu til að bóka rútu fyrir viðkomandi flokk. 


Foreldrar skulu að öllu jöfnu kosta ferðir og uppihald á mót (Íslandsmót, Faxaflóamót, TM mót, Orkumót, N1 mót, Símamót, Rey cup o.fl.) og foreldraráð kemur af stað fjáröflunum til að standa straum af kostnaði. Foreldrar greiða 2.000kr per barn per skemmtimót (helgarmót) fyrir þjálfarakostnað. KFÍA greiðir fyrir þjálfara á mót á vegum KSÍ.


Búningar 

Iðkandinn þarf sjálfur að greiða fyrir keppnisbúning KFÍA. Ef iðkandi er að fá búning í fyrsta sinn þá þarf að hafa samband við skrifstofu KFÍA, hægt að senda tölvupóst á palli@ia.is, til þess að fá uppgefið keppnisnúmer (númer aftan á treyjuna). 






Share by: