Fréttir
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stærra letur Eðlilegt letur Leita
22. febrúar 2010

3 - 1 sigur á Njarðvík

Fyrsti leikur Skagamanna (og Njarðvíkinga) í deildarbikarnum fór fram í Akraneshöllinni í kvöld við bestu aðstæður.  Skagamenn voru talsvert sterkari allan tímann og eftir fjörugan fyrri hálfeik, þar sem Skagamenn settu þrjú mörk en gestirnir eitt þá var seinni hálfleikurinn markalaus og lokatölur 3 - 1 fyrir ÍA. 

Fyrri hálfleikurinn fór fjörlega af stað fyrir Skagamenn því hvert færið rak annað fyrstu mínúturnar.  Á 8. mínútu skoraði Arnar Már Guðjónsson eftir prýðilega sókn, Fannar Freyr setti boltann í stöngina en Arnar Már smellti honum í netið.  Aðeins þremur mínútum síðar fékk Fannar Freyr Gíslason ágætan frið í vítateignum hjá Njarðvík og lét vaða í netið - fínt mark hjá kappanum og staðan 2-0.  Í framhaldi rak hvert færið annað og þeir Arnar Már og Andri Júlíusson hefðu átt að setja sitt hvort markið.  Njarðvíkingar sem voru hálf freðnir fyrstu mínúturnar komust þá í sókn og á 20. mínútu áttu þeir undarlega spyrnu á markið sem sigldi laglega í vinkilinn - staðan 2-1.  Það sem eftir lifði hálfleiksins áttu Skagamenn spilið og spörkin - m.a. átti Andri Júlíusson þrjár ágætar tilraunir á markið og Igor átti síðan á 45. mínútu hörku neglu sem markvörðurinn varði.  Guðjón Sveinsson tók frákastið en lét verja frá sér í dauðafæri.  Á síðustu andartökum fyrri hálfleiks var brotið á Andra Júlíussyni innan vítateigs og Ragnar Leósson skoraði örugglega úr vítaspyrnunni sem fylgdi í kjölfarið.

Seinni hálfleikur var satt að segja talsvert minna fyrir augað.  Skagamenn héldu boltanum og sóttu nánast stanslaust fyrstu 25 mínútur hálfleiksins án þess þó að skapa sér raunveruleg færi, en Njarðvíkingar vörðust og börðust vel fyrir sínu.  Dró þó heldur til tíðinda á 69. mínútu þegar Andri Júlíusson tók tvær heldur hressilegar tæklingar sem leiddu til þess að hann fékk rautt spjald, sem verður víst ekki kvartað yfir.  Síðustu 20 mínúturnar komust Njarðvíkingar meira inn í leikinn án þess að skapa sér færi - fyrr en á lokamínútu leiksins að þeir áttu ágætis skot í vinkilinn - en út.  Lokatölur 3-1 og sanngjarn sigur Skagamanna.

Skagaliðið lék fínan fótbolta í fyrri hálfeliknum - en í þeim seinna tók baráttan völdin en spilið minnkaði.  Hins vegar er ljóst að piltarnir fengu þarna smjörþefinn af komandi sumri því Njarðvíkingar gefast ekki upp þótt móti blási.  Arnar Már Guðjónsson bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í dag - en vissulega var Heimir fyrirliði Einarsson traustur með Ísleif öruggann sér við hlið.  Andri Júl., Ragnar Leósson og Igor áttu ágætar rispur í fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari var það barátta leikmanna sem fær hrósið.

 

Lið ÍA:

                                      Páll Gísli

Aron Ýmir   Heimir (Andri Geir 86. mín)  Ísleifur   Guðjón

                Arnar Már          Igor (Einar Logi 45. mín.)

                                 Ragnar Leóss. (Ívar 80. mín.)

Andri Júl.   Fannar Freyr (Arnþór Ingi 60. mín.)  Óli Valur (Andri Adolphs. 69. mín.)



Til baka